Þórarinn vill forðast öfugan ras­isma á hrekkja­vökunni: „Asískt fólk klæði sig ekki eins og Super­man eða Bat­man“

Þórarinn Hjartar­son, þáttar­stjórnandi hlað­varpsins Ein Pæling, skrifar heldur betur á­huga­verða grein á Vísi í dag sem hefur vakið mikla at­hygli.

„Hrekkja­vaka er há­tíð af írskum upp­runa sem Ís­lendingar hafa undan­farin ár gert að sinni. Í til­efni af því er mikil­vægt að minna á að menning annarra er ekki búningur.

Frelsi í búninga­vali býður þeirri hættu heim að fólk telji sér í trú um að það sé mögu­legt að verða hluti af kyn­þætti sem það hefur hvorki líf­fræði­lega né menningar­lega burði til þess að verða. Það heitir að fremja menningar­nám,“ skrifar Þórarinn.

Hann segir að það sé mikil­vægt að fólk sé með­vitað og beri virðingu fyrir menningu annarra.

„Í því felst að að­greina kyn­þætti á við­eig­andi máta. Hvítir klæði sig ekki eins og Po­ca­hontas eða Black Pant­her, að asískt fólk klæði sig ekki eins og Super­man eða Bat­man og að þel­dökkir klæði sig ekki upp sem per­sónur úr Frozen eða Rick and Mor­ty.“

„Nú virðast þeir hópar sem eru fórnar­lömb menningar­náms ekki telja þetta vera vanda­mál. Það er sökum þess að hvít­þvottur ný­lendu­ríkjanna hefur seytlað inn í menningar­heim fórnar­lambanna og valdið þeirri við­teknu og var­huga­verðu hug­mynd að það sé í lagi að klæða sig eins og maður vill. Því er sér­stak­lega mikil­vægt að hvítt fólk vekji at­hygli á þessu vanda­máli hvarvetna á sam­fé­lags­miðlum þar sem þau geta,“ skrifar Þórarinn.

„Fólk þarf að gera sér grein fyrir því að manneskjan sem er van­virt á þennan máta getur aldrei farið úr sínum búning. Það er því mikil­vægt að fólk sé með á hreinu hvaða hópi það til­heyrir og hvaða hópi það til­heyrir ekki, og mun aldrei til­heyra.

Munum að klæðast á hrekkja­vökunni ein­vörðungu per­sónum sem til­heyra sama kyn­þætti og menningar­heimi og við sjálf. Ekki klæða þig upp eins og ras­isti á Hrekkja­vökunni. Það er árið 2022. Gerum betur,“ skrifar Þórarinn að lokum.