Þórarinn Ævarsson, stofnandi Spaðans, hefur staðið við stóru orðin um að veita Domino's harða samkeppni á íslenska pizzumarkaðnum.
Í Fréttablaðinu í dag birtist heilsíðuauglýsing frá Spaðanum þar sem staðurinn undirstrikar að hann bjóði upp á hagstæðasta þriðjudags pizzutilboð landsins.
Þriðjudagstilboð Domino's hefur lengi notið vinsælda en í því er hægt að fá miðstærð af pizzu með þremur áleggstegundum á 1.100 krónur.
Þriðjudagstilboð Spaðans felur aftur á móti í sér 16“ pizzu af matseðli á 1.600 krónur. Í auglýsingunni í Fréttablaðinu segir meðal annars:
„Það er ekkert sem toppar 16“ pizzu af matseðli á 1600 kr. Þú getur valið úr yfir 30 tegundum af gómsætum og afar matarmiklum pizzum, þar sem allir geta fundið eitthvað fyrir sinn smekk.“
Efst í auglýsingunni stendur svo stórum stöfum: „Þriðjudagstilboð Spaðans er besta þriðjudags pizzatilboð landsins.“
Þórarinn vakti athygli í fyrra þegar hann lét þau orð falla í Dagmálum á mbl.is að hann ætlaði sér að keyra Domino‘s í þrot. Hann dró síðar úr þeim orðum sínum og sagðist hafa farið hressilega fram úr sér.
„Það sem ég var í raun að reyna að koma frá mér var það að ef áætlanir Spaðans gengju eftir, um að opna 6 til 7 stór útibú á næstu árum, raungerðust, þá væri rekstrargrundvöllur Domino's Pizza eins og fyrirtækið er sett upp horfinn, en afleiðing þess yrði þá sú að fyrirtækið færi líklega í þrot.“