Þóra yfir­heyrð af lög­reglunni á nýjan leik: „Stutt og til­tölu­lega vand­ræða­legt“

Þóra Arnórs­dóttir, fyrr­verandi rit­stjóri frétta­skýringar­þáttarins Kveiks á Rúv var yfir­heyrð af lög­reglu á þriðju­dag vegna gruns um brot gegn lögum um frið­helgi einka­lífs í tengslum við um­fjöllun um skæru­liðia­deild Sam­herja.

Þetta kemur fram í Morgun­blaðinu. Þóra segist enn vera með réttar­stöðu sak­bornings í málinu. Hún gerir ráð fyrir því að það sé stutt í málinu verði lokað af lög­reglunni.

„Þetta var stutt og til­­­tölu­­lega vand­ræðal­egt. Lög­maður­inn minn bókaði sterk mót­­mæli yfir því hversu lang­an tíma þetta hefði tekið, enda bryti það í bága við saka­­mála­lög. En ég geri ráð fyr­ir því að þessu ljúki mjög fljót­­lega,“ segir Þóra í sam­tali við Morgun­blaðið.