Þóra Hallgrímsson, eiginkona Björgólfs Guðmundssonar athafnamanns og fjárfestis, varð níræð fyrr á þessu ári. Þóra hefur marga fjöruna sopið á langri ævi og kveðst þakklát fyrir þá erfiðleika sem hún hefur gengið í gegnum.
Þóra ræðir þetta og fleira til í viðtali við Lifðu núna, en á vefnum er fjallað um líf og störf landsmanna sem komnir eru yfir miðjan aldur.
Þóra er meðal annars beðin um að gefa fólki ráð. Hún segir mikilvægt að reyna eftir fremsta megni að njóta hvers tímabils því alltaf sé hægt að sjá björtu hliðarnar. Lífið bjóði upp á mismunandi aðstæður á mismunandi tímum.
„Stundum hef ég hikað og hugsað með mér: „Ah, þetta er nú aðeins of mikið og hvað er nú ætlast til að ég læri af þessu? En þegar frá líður hefur yfirleitt komið í ljós að ég hef getað sagt við sjálfa mig: Já, það var sannarlega gott að ég upplifði þetta þótt það hafi verið erfitt á meðan á því stóð.”
Það er því hægt að draga lærdóm af öllu sem gerist í lífinu, bæði góðu og slæmu.
„Maður sér það bara ekki á meðan hlutirnir eru að gerast en öll él birtir upp um síðir. En um leið og ég segi það veit ég að auðvitað komast ekki allir farsællega út úr lífinu. Það eru til aðstæður sem við ráðum ekki við. En vonandi erum við svo lánsöm hér á Íslandi að geta hjálpað þeim sem þurfa á því að halda. Ég hef sjálf verið heppin.“