Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar og fjölmiðlakona, segir fráleitt að Alþingi svipti tónlistarmanninn Megas heiðurslaunum listamanna. „Ég hef megnustu óbeit á þeirri hugmynd að Alþingi geti farið að kveða upp einhverja siðferðisdóma yfir þeim listamönnum sem það hefur sett á heiðurslaun,“ segir hún á Facebook.
Hefur það alvarlega verið rætt á þingi að svipta Megas laununum í kjölfar ásakana á hendur honum um kynferðisbrot gegn Bergþóru Einarsdóttur árið 2004. Þóra Kristín segir að hún hafi mikla samúð með Bergþóru:
„Þótt þáttur Megasar í því sé afar ógeðfelldur þá er hann mikill listamaður og listin á ekki að vera undir ritskoðun stjórnmálafólks og það á ekki að ýta undir pólitíska sjálfsritskoðun af neinu tagi. Það er hættulegt og sagan hefur ekki farið mjúkum höndum um slíka tilburði.“
Rithöfundurinn Vigdís Grímsdóttir hvetur til að staðið sé með fórnarlambinu gegn gerandanum:
„Það er enginn að hugsa um Megas og hvað hann, gamall listakallinn, gerði Bergþóru, tvítugri stúlku í góðri trú á sitt idol. Hversu margir hafa ekki farið flatt á þeirri trú, hversu margir hafa ekki tapað reisn sinni og virðingu við slíka bernskuhugmynd; að frægur maður sé besti náunginn,“ segir hún í athugasemd við færslu Þóru.
„Heiðurslaunin eru það minnsta sem Megas missir, ellilaunin koma í staðinn með nákvæmlega sama hætti. Hann tapar engu, hann missir enga peninga, ekki krónu. Sjálfsvirðinguna deyddi hann sjálfur.“