„Nú ætti félagshyggjufólk að hafa augun á boltanum. Öll saman geta þau myndað nýjan meirihluta með sósíalistum og Framsókn. Og auðvitað á VG að vera með í slíkri stjórn. Hvaða fíflagangur er þetta eiginlega?“
Þetta segir Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fyrrverandi fjölmiðlakona, á Facebook-síðu sinni um meirihlutaviðræður í borginni. Flest bendir til þess að Framsóknarflokkurinn myndi meirihluta í borginni en spurningin er aðeins með hvaða flokkum. Einn möguleikinn er að flokkurinn myndi meirihluta með Samfylkingu og Pírötum og yrðu þessir flokkar þá með 12 fulltrúa. Annar möguleikinn er meirihluti með Sjálfstæðisflokki, Viðreisn og Flokki fólksins.
Fleiri möguleikar eru vitanlega í stöðunni en allt bendir þó til þess að nýr meirihluti, sama hvernig hann verður, verði myndaður án VG. Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, sagði um helgina að flokkurinn myndi ekki taka þátt í meirihlutasamtarfi á kjörtímabilinu.
Þóra Kristín segir að félagshyggjufólki geti vel myndað nýjan meirihluta með Sósíalistum og Framsókn og VG eigi að vera með í slíkri stjórn. Mikilvægt sé að hlusta á kjósendur.
„Við viljum að þið hættið að draga lappirnar varðandi Sundabraut og setjið hana í forgang og síðan borgarlinu. Eitt útilokar ekki annað. Og farið að byggja og kaupa félagslegar leiguíbúðir til að svara eftirspurn. Það hlýtur að vera hægt að sameinast um þetta. Og látið strandlengjuna í Skerjafirði vera,“ segir Þóra Kristín á Facebook-síðu sinni og endar pistilinn á þessum orðum:
„Ef stóru strákarnir geta ekki komið sér saman um hvor þeirra verður borgarstjóri þá var litla systir líka að vinna talsverðan sigur. Sanna yrði flottur borgarstjóri og það yrði ykkur til sóma að láta það gerast.“