Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fjölmiðlakona og upplýsingafulltrúi Íslenskrar erfðagreiningar, hefur tekið þá ákvörðun að bjóða sig fram til formanns SÁÁ. Þetta segist Þóra gera í kjölfar áskorana frá fjölmörgum innan samtakanna.
Einar Hermannsson sagði af sér formennsku í samtökunum í síðustu viku eftir að upp komst um vændiskaup hans.
Í yfirlýsingu sem Þóra Kristín birtir á Facebook-síðu sinni segist hún vonast til að fá stuðning til að hrinda í framkvæmd tímabærum breytingum á starfsemi SÁÁ sem ekki er hægt að skorast undan lengur í ljósi síðustu atburða.
„Okkar sameiginlegu hagsmunir, bæði þeirra sem hafa glímt við fíknivanda og/eða eiga ástvini í þeim sporum, og samfélagsins alls, eru að við gerum allt sem við getum til að að styðja veika alkóhólista til betra lífs, með meðferð, endurhæfingu, sálrænum stuðningi og eftirfylgd,“ segir hún.
Í yfirlýsingu sinni bendir hún á að SÁÁ sé samansafn ólíkra einstaklinga með mjög fjölbreyttan farangur mannlegra breyskleika. Samtökin vilji taka utan um alla, hjálpa öllum og það megi aldrei breytast.
„Þegar það koma upp erfið mál innan samtakanna eða á sjúkrastofnunum þeirra verðum við alltaf að taka stöðu með þolendum ofbeldis. Þetta getur verið flókið en það þýðir ekki að það megi gefa afslátt af öryggi fólks eða mannlegri reisn. Þetta er flókið viðfangsefni vegna þess að við erum öll saman í þessu, karlar, konur og ungmenni, bæði gerendur og þolendur ofbeldisbrota. Eitruð karlmennska og harka er fylgifiskur harðrar neyslu og þótt fólk komi úr allskonar aðstæðum höfum við flest verið föst inni í vítahring og útsett fyrir margskonar ofbeldi og sárindum. Konur hafa oft veikari félagslega stöðu og minni líkamsburði til að verja sig.“
Þóra Kristín segir að til mikils sé að vinna. Ofneysla áfengis, lyfja og annarra vímuefna sé algengasta dánarorsök ungs fólks í dag.
„Bakvið slys, afbrot, ofbeldi, ótímabæra örorku, geðsjúkdóma, og hræðileg barnaverndarmál, felur þessi sjúkdómur sig oft í bakgrunninum sem orsök eða meðvirkandi þáttur.“
Meðal þess sem Þóra Kristín leggur til er að sett verði saman sannleiksnefnd til að taka á ofbeldis- og áreitnismálum innan vébanda samtakanna í fortíð og framtíð. Nýkjörin stjórn þurfi að setja sér siðareglur til að tryggja að það hafi sjálfkrafa í för með sér brottvísun úr öllum trúnaðarstöðum ef fólk innan samtakanna verður uppvíst að því að brjóta á veiku fólki eða misnota aðstöðu sína.
„SÁÁ eru grasrótarsamtök ólíkra einstaklinga sem hafa borið uppi meðferð alkóhólista og vímuefnasjúklinga áratugum saman. Karlar og konur, fólk úr öllum stéttum samfélagsins, hafa tekið höndum saman í baráttunni og sú samkennd ásamt velvild þjóðarinnar er dýrmætasta eign samtakanna,“ segir hún í yfirlýsingu sinni sem hún endar á þessum orðum:
„Samtökin hafa haft ótrúlegan meðbyr í samfélaginu vegna þess ótvíræða árangurs sem hefur náðst. Þar hafa margir einstaklingar lyft grettistaki og ég ber ómælda virðingu fyrir þeim öllum. Ég bið um ykkar stuðning til að leiða umbótastarfið framundan.“