Þóra: Allir í keppni um flottustu hlutina – Lífið breyttist þegar hún tileinkaði sér hæglæti

„Í grunninn snýst þetta um að taka sér tíma í það sem maður er að gera,“ segir Þóra Jónsdóttir, formaður Hæglætishreyfingarinnar á Íslandi, í athyglisverðu viðtali í Fréttablaðinu í dag.

Í fréttinni er greint frá því að stofnuð hafi verið svokölluð hæglætishreyfing á landinu en Þóra segir að hæglæti snúi að því að vera með athygli á núlíðandi stund. „Að heyra og hlusta, að anda og njóta, að velja meðvitað að takmarka streitu, draga úr neyslu, taka sér minna fyrir hendur og gera færri hluti í einu,“ segir hún.

Svo virðist vera sem talsverður áhugi sé fyrir hreyfingu af þessu tagi á landinu en sjálf kynntist Þóra hæglæti fyrir fimmtán árum. Hún segir að það að tileinka sér hæglæti hafi breytt ýmsu í hennar lífi.

„Ástandið í samfélaginu er svo rafmagnað af keppni, spennu og einhvers konar hamfarahyggju., Við erum öll í svo mikilli keppni um að eiga fínustu húsin, ná að gera allt sem ætlast er til af okkur og vera dugleg á öllum sviðum en á sama tíma sýnum við bara glansmynd af okkur á samfélagsmiðlum svo við erum ekki einu sinni að keppa við sannleikann,“ segir hún.

Hún bætir við að hún hafi sjálf alla tíð átt erfitt með hraða samfélagsins og þegar hún uppgötvaði hæglæti öðlaðist hún mikla hugarrá. „Það að láta af eigin hugmyndum og eigin kröfum um það að ég væri ekki að standa mig nógu vel heldur að ég mætti bara lifa sæl og glöð með það sem ég hefði var frelsandi fyrir mig.“

Nánar á vef Fréttablaðsins.