Þór Saari um dóminn: „Eftir þetta má segja hvað sem er um hvern sem er“

Ummæli Arnþrúðar Karlsdóttur, útvarpsstjóra Útvarpi Sögu, um að Reynir Traustason ritstjóri Mannlífs sé með mannslíf á samviskunni standa. Þetta kemur fram í nýjum dómi Hæstaréttar þar sem segir að umræða um mikilvæg þjóðfélagsmál njóti aukinnar verndar tjáningarfrelsis.

Ummæli Arnþrúðar voru eftirfarandi:

  • „Sjáðu bara eins og […] stjórnarformann Stundarinnar, Reyni Traustason. Hvað heldurðu að hann hafi mörg mannslíf og fjölskylduhamingju á á samviskunni? Bæði frá því sem ritstjóri DV og ritstjóri Stundarinnar og þá stjórnarformaður Stundarinnar.“

  • „Hvað heldurðu að hann hafi mörg mannslíf á á á samviskunni þar sem hann hefur lagt heilu fjölskyldurnar og fólk í rúst út af athugasemdakerfum sem hann lét með lygafréttum sem að eru framleiddar?“

  • „Hvað heldurðu að séu margir, sem eru búnir að gráta úr sér augun yfir lygunum í þeim?“

Reynir óskaði Arnþrúði til hamingju:

„Ég óska Arnþrúði Karlsdóttur til hamingju með sigurinn fyrir Hæstarétti. Dómurinn rýmkar að sjálfsögðu tjáningarfrelsið. Nú mun ég skoða framhaldið með Gunnari Inga Jóhannssyni lögmanni mínum,“ skrifar hann á Facebook.

Miklar umræður hafa skapast um þetta, meðal þeirra sem hafa talað um dóminn er Þór Saari, fyrrverandi þingmaður, sem segir:

„Eftir þetta má segja hvað sem er um hvern sem er. Það er engin marktæk meiðyrðalöggjöf í landinu.“

Einar Steingrímsson prófessor og samfélagsrýnir er ekki sammála, en hann segir:

„Það væri klikkað að líta á svona ummæli sem ásökun um raunveruleg manndráp. Og aumingjalegt hjá Reyni að þvæla þessu gegnum dómskerfið, verandi sjálfur ritstjóri sem ætti að vera annt um tjáningarfrelsi fjölmiðla.