Þór Saari, fyrrverandi þingmaður og hagfræðingur, virðist ekki sakna starfsins á Alþingi. Þór er sextugur í dag og af því tilefni er hann í viðtali við Morgunblaðið þar sem hann fer meðal annars yfir árin á Alþingi. Þór var þingmaður á árunum 2009 til 2013.
Þór settist á þing fljótlega eftir hrun og upplifði býsna merkilega tíma. Hann segir að þingstarfið sem slíkt hafi verið áhugavert en vinnuumhverfið ekki beint upp á marga fiska.
„Þingmennskan og atið í kringum hana var í raun alger hakkavél þar sem maður var í vinnunni sjö daga vikunnar í fjögur ár. Þetta voru krefjandi tímar þar sem reynt var að tjasla saman hrundu samfélagi og stjórnmálum með öllum þeim átökum sem því fylgdu. Aðspurður hef ég lýst þessu þannig að þingstarfið hafi verið mjög áhugavert. Það hafi verið merkileg og mikilvæg reynsla og gert mér kleift að kynnast fólki, landi, þjóð, stjórnsýslu og stjórnskipan á nýju og dýpra plani en áður og líka kennt mér að hægt er að eiga í samskiptum við annað fólk við furðulegustu aðstæður,“ segir Þór en bætir svo við:
„Það fylgir þó með að íslensk stjórnmál eru jafnframt án vafa ömurlegasta vinnuumhverfi sem ég hef nokkurn tíma unnið í.“
Þór hefur sagt skilið við stjórnmálin en situr ekki auðum höndum, langt því frá. Hann setti á fót ferðaþjónustu, skrifaði bók um árin á Alþingi, fengist við ráðgjöf og þá kemur fram í Morgunblaðinu að hann hafi nýlega lokið diplómanámi í þýðingafræði við Háskóla Íslands.