Þór Saari, fyrrverandi þingmaður, leggur til að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sæki sér hjálpar hjá SÁÁ.
Þetta kemur fram í ummælum sem hann lét falla fyrir neðan færslu sem Áslaug birti á Facebook í dag. Þar greindi hún frá því að hún væri fyrst til þess að kaupa bjór frá brugghúsinu Smiðjunni í Vík í Mýrdal, en Smiðjan var fyrsta brugghús landsins sem hefur fengið leyfi til að selja bjór á framleiðslustað.
„Þessi áhugi þinn og margra sjálfstæðismanna á sprútti og sprúttsölu er orðinn pínlegur og fullkomlega ábyrgðarlaus og stafar hugsanlega af öðru en hugmyndafræði.“ Skrifaði Þór Saari við færsluna, og bætti við:
„Hringdu í 530 7600.“ - Það er símanúmerið hjá SÁÁ.