Þór Saari, hagfræðingur og fyrrverandi þingmaður, skellti sér í Bakarameistarann í gær og keypti sér kleinu.
Þór segir frá þessu í Facebook-hópnum Vertu á verði – eftirlit með verðlagi. Í færslunni bendir hann á að svo virðist vera sem þessi vinsæla bakarískeðja hafi hækkað hjá sér verð á síðustu dögum.
Í færslunni segir Þór:
„Bakarameistarinn hækkar verð. Keypti mér kleinu þar í dag sem kostaði 305 kr. fyrir örfáum dögum. Í dag kostar hún 335 kr. það er 10% hækkun. 335 kr. er ansi vel í lagt fyrir eina kleinu.“
Ýmsir taka undir að 335 krónur séu býsna vel í lagt fyrir eina kleinu en þá eru einnig sumir sem benda á að laun og vöruverð frá birgjum hafi hækkað um áramótin. Verð á hveiti hafi einnig hækkað undir lok nýliðins árs. Það sé óhjákvæmilegt að það skili sér út í verðlag með hærra vöruverði eins og Þór bendir á í færslu sinni.