Þór Saari, hagfræðingur og fyrrverandi þingmaður, segir að Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, sé „enn einn vælukjóinn í íslensku viðskiptalífi.“
Tilefni þessara orða Þórs er viðtal Vísis við Ólaf á dögunum þar sem hann gagnrýndi háa áfengisskatta hér á landi. Sagði hann að „brjálæðislega dýr bjór“ bitni á ferðaþjónustunni og þeim sem lægstar tekjurnar hafi.
„Við fáum aldrei nein svör við því frá stjórnmálamönnum hvaða skynsamlegu rök séu fyrir því að Íslendingar borgi til dæmis fimm til átta sinnum hærri áfengisskatt heldur en Danir, sem búa í afskaplega svipuðu þjóðfélagi og við. Þessi munur eykst bara ár frá ári og þetta kemur að sjálfsögðu niður á neytendum og lífskjörum. Af því að auðvitað eru áfengisinnkaupin bara partur af matarinnkaupunum eins og alls staðar annars staðar,“ sagði Ólafur meðal annars.
Þór segir að gagnrýni Ólafs komi úr hörðustu átt.
„Þessi gaur er í forsvari fyrir félag heildsala sem nú kallar sig Félag atvinnurekenda, en heildsalar hafa einmitt gengið mjög bratt fram í því að hækka heildsöluverð, sem svo hefur leitt til hærra smásöluverðs og verðbólgu með tilheyrandi hærri vöxtum Seðlabanka og svo hærri afborgunum af húsnæðislánum fólks.“
Hann vill meina að Ólafur ætti að líta sér nær.
„Þessi maður og félagar hans bera því sjálfir beina ábyrgð á efnahagsástandinu hér á landi og þeim hremmingum sem almenningur er að lenda í vegna hárra afborgana af lánum. Hræsnin ríður svo sannarlega ekki við einteyming hjá bröskurum landsins.
Þessi endalausi væll í íslensku viðskiptalífi er pínlegur og vísbending um að íslenskir "athafnamenn" a.k.a. braskarar, séu bara aumingjar sem ættu að vera í einhverju allt öðru en bisness.“