Þór Saari, fyrrverandi þingmaður, gefur Alþingi Íslendinga ekki háa einkunn og segir raunar að það sé leitun að „meiri aumingjasamkomu“ í hinum vestræna heimi.
Tilefni þessarar hörðu gagnrýni er úrskurður héraðsdóms í gær þess efnis að ekki sé leyfilegt að skikka fólk í sóttkví í farsóttarhúsi. Breyting tók gildi þann 1. apríl síðastliðinn sem fól í sér að fólk frá áhættusvæðum þyrfti að fara í fimm daga sóttkví í sérstöku farsóttarhúsi. Nú hefur héraðsdómur úrskurðað um lögmæti þess og virðist niðurstaðan skýr.
„Ósætti innan ríksstjórnarflokkana og frámunalega barnalegar hugmyndir alþingismanna um hugtakið frelsi hafa nú gert það að verkum að Alþingið okkar getur ekki sett almennileg sóttvarnarlög til verndar almenningi í landinu, og það í miðjum heimsfaraldri,“ segir Þór í færslu á Facebook-síðu sinni í gær. Færslan hefur vakið þó nokkra athygli.
„Ég lýg því ekki að ég sannarlega held að það sé leitun að meiri aumingjasamkomu en Alþingi íslendinga í öllum hinum vestræna heimi. Ég var þarna í fjögur ár og upplifunin var slík að ég varð að skrifa heila bók um vinnubrögðin. Þau hafa greinilega ekkert breyst,“ segir Þór sem komst inn á Alþingi árið 2009 fyrir Borgarahreyfinguna, skömmu eftir hrunið, og sat þar til ársins 2013.
Bókin sem Þór vísar til heitir Hvað er eiginlega að þessu Alþingi? og kom út árið 2016. Í henni er að finna harða gagnrýni á starfshætti þingsins í ýmsum málum.
„Að sjálfsögðu á þetta þing að segja af sér og það á að boða til kosninga strax þar sem þau ráða augljóslega ekki við verkið. Vanhæf ríkisstjórn og algjörlega vanhæft Alþingi er einfalega ekki hægt að líða. Burt með ykkur!,“ segir Þór að lokum.
Ósætti innan ríksstjórnarflokkana og frámunalega barnalegar hugmyndir alþingismanna um hugtakið frelsi hafa nú gert það...
Posted by Þór Saari on Mánudagur, 5. apríl 2021