„Ísland hefur haft sjálfstæði frá því 1944 eða í 76 ár og enn er landið á þessum stað, þrátt fyrir að hafa verið í félagsskap vestrænna lýðræðisþjóða sem hefði verið hægt að nota sem fyrirmyndir allan þennan tíma,“ segir Þór Saari, hagfræðingur og fyrrverandi þingmaður.
Fréttablaðið greindi frá því í gærkvöldi að aðeins fjórum af átján tilmælum Greco, um varnir gegn spillingu hjá æðstu handhöfum framkvæmdavalds og löggæslu, hefði verið mætt með fullnægjandi hætti af hálfu íslenskra stjórnvalda.
Um er að ræða lokaniðurstöðu fimmtu úttektar samtakanna, en frumskýrsla samtakanna var birt vorið 2018. Sem fyrr segir hefur verið brugðist með fullnægjandi hætti við fjórum af átján tilmælum, við sjö tilmælum hefur verið brugðist með ásættanlegum hætti en sjö tilmælum hefur ekki verið brugðist við.
Svo virðist sem minnstur árangur hafi naðst hjá íslenskum stjórnvöldum á sviði löggæslu. Þannig á eftir að endurskoða valdauppbyggingu innan lögreglunnar, meðal annars í því skyni að lágmarka pólitísk afskipti af henni. Þá eigi eftir að setja skýrari reglur um ráðningar og skipanir í embætti. Fleira er tekið til en nánar má lesa um það á vef Fréttablaðsins.
Þór Saari er einn þeirra sem gagnrýnir aðgerðarleysi íslenskra yfirvalda þegar kemur að vörnum gegn spillingu.
„Fjórar tillögur af átján, já, fjórar af átján. Í stað þess erum við í hópi spilltustu ríkja heims. Hvers vegna er það? Svarið liggur í því hvaða stjórnmálaflokkar hafa verið hér við völd mest allan þennan tíma. Það eru Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur.“
Inga Sæland, þingmaður og formaður Flokks fólksins, segir skýrslu Greco áfellisdóm.
„Þetta staðfestir það sem allir vita að spilling er ekki eitthvað sem stjórnvöld hafa áhuga á að kveða niður. Svo langt í frá! Þetta er MANNANNA VERK og ekkert annað.“