Svo virðist vera sem íbúar í Vesturbænum séu orðnir langþreyttir á þjófnuðum í hverfinu. Þannig greinir fjölmiðlakonan Hildur Helga Sigurðardóttir frá því í Facebook-hópnum Íbúasamtök Vesturbæjar að öllum yfirhöfnum hennar hafi verið stolið.
Þá greinir sagnfræðingurinn Guðjón Friðriksson frá því að lyklunum að bílnum hans hafi verið stolið og bíllinn hafi ekki sést í hálfan annan mánuð.
„Nei, nú eru þessi þjófnaðarmál hér í Vesturbænum orðin alvarleg! Í morgun voru horfnar allar yfirhafnir, sem hanga í fatahengi bakdyramegin. Þetta voru margar vandaðar og fínar flíkur, sem eftirsjá er að. Við erum stundum með opið út bakdyramegin á daginn þegar vel viðrar, en lokum yfirleitt á kvöldin. Eina skýringin á þessu hvarfi yfirhafna er sú að þarna hafi einhver bíræfinn farið inn um kjallaradyrnar og hreinlega látið greipar sópa í fatahenginu,“ segir Hildur í færslu sinni og bætir við að hún hafi stundum orðið vör við að fólk sniglist á bak við húsið, sem er á Ásvallagötu, en ekki gert mikið veður út af því.
„Frekar bara talað við fólkið og beðið það að koma ekki aftur. En þegar þjófar eru farnir að fara alla leið inn á heimilin er þetta orðið einum of! Auðvitað verður haft samband við lögreglu. Spurning hverju það skilar -og næstu grannar varaðir við.“
Sagnfræðingurinn og rithöfundurinn Guðjón Friðriksson skrifar svo athugasemd undir sem vakið hefur talsverða athygli. „Ég var gestkomandi að kvöldlagi á fjórðu hæð í húsi nálægt Miðbænum fyrir hálfum öðrum mánuði. Þar er fatahengi fyrir utan íbúðina. Einhver hafði laumast alla leið þangað upp, farið í vasann á yfirhöfn minni og stolið bíllyklum. Engin önnur íbúð er í húsinu en útidyrnar höfðu af einhverjum ástæðum ekki skollið í lás eins og henni var ætlað. Bíll minn hvarf og hefur ekki sést síðan.“
Guðjón bætir svo við að hann sé þegar búinn að afskrifa bílinn og fá hann bættan úr tryggingum. „Þetta er ákveðin vanhelgun á persónulega sviðinu,“ segir Guðjón um þjófnaði af þessu tagi.
Margir hafa lagt orð í bel og virðast sumir verða orðnir þreyttir á þessari stöðu. „Þetta er óþolandi ástand, svo er hópur fólks sem ver þetta lið. Eigum við bara að láta eins og ekkert sé og leyfa þessum þjófum að ræna frá okkur. Á hvaða leið er fólk í umburðarlyndinu,“ segir í einni athugasemd.