“Ég á víst að heita þjóðþekktur maður – og það er nánast segin saga að ef ég fer með vinum mínum á kráarrölt um helgar verð ég fyrir áreiti af ýmsu tagi, en þá er iðulega vaðið í klofið á manni og spurt hvort „hann“ sé ekki klár í slaginn, jafnvel bara inni á nálægu klói. Þetta er misjafnlega óþægilegt, en alltaf jafn asnalegt - og furðanlega algengt.“
Annar viðmælandi í þættinum segir: “Ég hef ítrekað lent í konum sem hafa leitað á mig og þær ganga mjög hreint til verks. Það eru bara komnar hendur á viðkvæma staði og það er kannski komið aftan að manni og einhver rödd segir, mig langar að ríða þér.”
Hjálmar Gunnar Sigmarsson kynjafræðingur og ráðgjafi hjá Stígamótum þekkir þessar sögur vel segir þær lýsa valdbeitingu sem geti haft skelfilegar afleiðingar eins og skömm og sektarkennd, depurð, þunglyndi, sjálfsvígshugleiðingar, lágt sjálfsmat. Þeir eiga jafnvel erfitt með náin samskipti og kynlíf, eigi erfitt með að rasa út í kynlífi, efist um eigin kynhneigð, eiga erfitt með að treysta sér til að taka að sér ný verkefni, treysta nýju umhverfi og félagslegum samskiptum. Stundum eru líkamlegar afleiðingar, veikindi, sjúkdómar og það eru sífellt fleiri rannsóknir sem sýna það.
Hjálmar Gunnar segir það vefjast fyrir íslenskum karlmönnum að tjá sig um vanmátt sinn og tilfinningar. “Við höfum talað við menn sem hafa bókstaflega sagt ‘Ég hef aldrei talað um hvernig mér líður’.” Hann segir viðteknar karlmennskuhugmyndir erfiðar viðureignar, “sú hugmynd að karlar eigi eigi að vera til í kynlíf hvenær sem er og eigi að vera tilkippilegir.”
Hjálmar Gunnar hvetur karla sem til að tjá sig um kynferðislega áreitni og ofbeldi og vísar á fræðsluefni á vef Stígamóta þar sem finna má fræðsluefni og símanúmer hjá ráðgjöfum: https://www.stigamot.is/
Sjá einnig frekari upplýsingar um Undir yfirborðið á FB: https://www.facebook.com/asdisolsen.is/
Sjá klippu úr þættinum: https://hringbraut.frettabladid.is/sjonvarp/undir-yfirbordid/stikla-seria-2-thattur-10/
Þátturinn er frumsýndur á Hringbraut í kvöld kl. 20:00 og er síðan aðgengilegur hér á vefnum : https://hringbraut.frettabladid.is/sjonvarp/undir-yfirbordid/