Inga Lind Karlsdóttir, ein þekktasta fjölmiðlakona landsins undanfarin ár, hefur verið veitt viðurkenning sem kjörræðismanni Spánar með ræðismannsstigi í Reykjavík. Tilkynnt var um þetta í Lögbirtingablaðinu í dag en Inga Lind fékk þessa viðurkenningu í febrúarmánuði.
Athygli vekur að þó nokkur fjöldi þekktra Íslendinga hefur hlotið þessa viðurkenningu eins og sjá má hér að neðan.
Kjörræðismenn Íslands eru ólaunaðir og er ætlast til þess að þeir séu „vel metnir, fjárhagslega sjálfstæðir, þekki vel til aðstæðna í móttökuríkinu og hafi þar góð tengsl“ eins og segir í svari utanríkisráðherra frá árinu 2018 um ræðismenn Íslands.
Á vef Félags kjörræðismanna á Íslandi, Consuls.is, má sjá lista yfir ræðismenn. Inga Lind er sem fyrr segir ræðismaður Spánar og Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, er ræðismaður Afríkuríkisins Botsvana. Geir Gunnlaugsson, fyrrverandi landlæknir, er ræðismaður Gíneu-Bissá en hann bjó í landinu fyrir margt löngu.
Almannatengillinn Andrés Jónsson er ræðismaður Indónesíu hér á landi og Jafet Ólafsson, fjárfestir og forseti Bridgesambandsins, er ræðismaður Rúmeníu hér á landi.
Jón Kristinn Snæhólm, fyrrverandi aðstoðarmaður Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, fyrrverandi borgarstjóra, er ræðismaður Seychelles-eyja og Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir, fjölmiðlakona á RÚV, er ræðismaður Sviss hér á landi. Þá er rithöfundurinn Njörður P. Njarðvík er ræðismaður Tógó hér á landi. Loks má nefna að kvikmyndagerðarmaðurinn Sigurjón Sighvatsson er ræðismaður Íslands í Los Angeles.