Þjóðleikhúsið segir að ásakanir á hendur tónlistarmanninum Auðunni Lútherssyni, sem kallar sig yfirleitt Auður, séu á borði leikhússins. DV fjallaði fyrst um málið nú í hádeginu.
Í fréttinni kemur fram að fjölmargar ásakanir á hendur tónlistarmanninum um ofbeldi hafi komið fram síðustu daga á samfélagsmiðlum á borð við Twitter og Instagram. Heimildir DV herma að ásakanirnar hafi verið ræddar á fundi í Þjóðleikhúsinu að Auði viðstöddum. Ekkert hafi þó verið aðhafst enn sem komið er.
Auður hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins undanfarin ár og átti hann til að mynda mest spilaða lag ársins 2019 á Rás 2 og Bylgjunni. Þá samdi hann tónlistina fyrir sýninguna Kópavogskróníkuna í Þjóðleikhúsinu. Þá tekur hann þátt í uppsetningu leikhússins á Rómeó og Júlíu og sér um hljóðheim uppsetningarinnar.