„Þjálfarinn nefndi nánast á hverri einustu æfingu að ég væri með stór brjóst“

„Ég steig mín fyrstu skref í meistara­flokk 14 ára. Þjálfarinn hafði orð á því á nánast hverri einustu æfingu að ég væri með stór brjóst,“ segir í frá­sögn ungrar konu sem birtist á vefnum Síðasta sagan.

Vefurinn hefur vakið tals­verða at­hygli en á honum safnar Margrét Björg Ást­valds­dóttir fé­lags­­fræðingur miður skemmti­­legum frá­­sögnum kvenna í í­­þróttum. Margrét er þjálfari körfu­­bolta­liðsins Aþenu og leik­­maður Fylkis í Úr­­vals­­deild kvenna í knatt­­spyrnu en rann­­sókn sem hún gerði árið 2016 leiddi í ljós gríðar­­legt kynja­mis­rétti í um­­­gjörð knatt­­spyrnu­hreyfingarinnar. Eftir rann­­sóknina hóf Margrét að safna sögum, en á síðunni má sjá sögur frá í­þrótta­konum úr körfu­­bolta, fót­­bolta, hand­­bolta og öðrum í­­þróttum.

Í einni sögunni lýsir ung kona sem byrjaði ung að æfa með meistara­flokksliði í knatt­spyrnu ó­sæmi­legum at­huga­semdum frá þjálfara sínum.

„Hann spurði mig líka ó­þægi­legra spurninga varðandi brjóstin og brjósta­stærð mjög reglu­lega, fyrir framan allt liðið og aðra sem ná­lægt voru. Þegar ég var ný búin í fitu­mælingu á hans vegum þar sem ég mældist 13% fita. Þá hafði hann fyrir því að segja öllum frá því að það væri allt í brjóstunum. Sami þjálfari þjálfaði líka yngri flokk karla þar sem hann spurði iðk­endur hvort við stelpurnar værum ekki í rúnkminni þeirra. Þessi maður hefur þjálfað mörg fé­lags­lið kvenna og karla sem og yngri lands­lið,“ segir í frá­sögninni.

Sagan er ein af fjöl­mörgum sem birst hafa á síðunni að undan­förnu. Í einni sögunni segir stúlka úr körfu­bolta frá því að dómari hafi sent henni skila­boð á Insta­gram fyrir leik sem hann dæmdi hjá henni.

„Hann sendir mér oft kyn­ferðis­leg skila­boð um hvað ég er með flottan rass og hvað það er erfitt fyrir hann að ein­beita sér í leikjum. Ég var orðin pirruð á þessu svo ég bað hann að hætta eða að ég myndi segja frá. Í næsta leik sem hann dæmdi hjá mér fékk ég tækni­villu frá honum og var ó­sátt. Eftir leikinn sendi hann mér skila­boð um að ef ég sendi honum myndir af líkamanum mínum myndi hann dæma betur fyrir mig. Dómarinn dæmir enn­þá í dag.“