Þing­menn stóðu upp og klöppuðu fyrir Selenskí: „Við lítum á ykkur sem ná­granna“

Vólódí­mír Selenskí, for­seti Úkraínu, lauk rétt í þessu á­­varpi sínu fyrir Al­þingi Ís­­lendinga. Birgir Ár­­manns­­son, for­­seti Al­þingis, tók fyrstur til máls og byrjaði á að bjóða alla vel­komna á þennan ein­s­taka við­burð. Hann sagði Ís­­lendinga og þing­­menn hafa fylgst með styrknum í Úkraínu­­mönnum og sagði Al­þingi for­­dæma harð­­lega fram­­gang Rússa.

Selenskí hóf ræðu sína á góðri ís­­lensku og sagði „góðan daginn." Hann sagðist þakk­látur fyrir tæki­­færið að fá tala fyrir framan Al­þingi Ís­­lendinga sem hann sagði það endur­­­spegla hinn frjálsa heim.

„Þetta er mikill heiður fyrir mig að fá mæla hér á Al­þingi sem endur­­­speglar hinn frjálsa heim,“ sagði Selenski. „Við erum mjög tengd í menningar­­legu til­­liti og höfum verið það í yfir þúsund ár,“ bætti hann við.

Selenskí sagði að það væri ýmis­­legt sem tengdi Ís­land og Úkraínu en nú væri Úkraína þolandi á­rása frá Rússum. „Þeir vilja ná landi okkar og segja að Úkraína eigi ekki neinn rétt til sjálf­­stæðis,“ sagði Selenskí.

„Við horfum kannski ekki á sömu ógnir og þið, með eld­­gos og jarð­­skjálfta, en við lítum á ykkur sem ná­granna,“ sagði Selenskí og bætti við að verið væri að berjast fyrir grund­vallar mann­réttindum í stríðinu í Úkraínu.

Hann sagðist þakk­látur fyrir að Ís­­lendingar tóku þótt í efna­hags­að­­gerðum gegn Rúss­landi. „Ég hvet ykkur ein­­dregið til að halda þessari að­­stoð á­­fram og setja þrýsting á Rúss­land. Enginn við­­skipti við ein­ræðið,“ sagði Selenskí og bætti við að öll lönd ættu að hætta að kaupa rúss­neska olíu.

„Það skiptir ekki máli hvort þjóðin er stór eða lítil heldur skiptir fram­lag hvers og eins máli,“ sagði Selenskí.

Hann sagði að fram undan væri mikil endur­­­upp­­bygging í Úkraínu og sagði að reynsla Ís­­lendinga í orku­­málum gæti reynst vel á því sviði.

„En fyrst verðum við að vinna þetta stríð,“ sagði Selenskí að lokum og stóð þing­heimur upp og klappaði.

Sjá mátti að á­varp Selenskí snerti við þing­mönnum en í út­sendingunni sáust tár á hvarmi sumra við­straddra.