Sveitarstjórnum verður heimilt að ákveða gjald upp á allt að 40 þúsund krónur vegna notkunar nagladekkja nái frumvarp Jóhanns Páls Jóhannssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, fram að ganga.
Meðflutningsmenn að frumvarpinu eru Helga Vala Helgadóttir, Kristrún Frostadóttir, Logi Einarsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmenn Samfylkingarinnar.
Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að tilgangurinn sé að annars vegar að draga úr notkun nagladekkja og vinna þannig gegn lífshættulegri svifryksmengun og hins vegar að standa straum af kostnaði sveitarfélaga vegna slits á vegum.
„Akstur á nagladekkjum er langstærsti orsakavaldur svifryksmengunar á höfuðborgarsvæðinu. Rannsóknir sýna að svifryksmengun veldur auknum innlögnum á sjúkrahús og leggst þyngst á eldra fólk, börn, óléttar konur og fólk með undirliggjandi hjarta-, æða- og öndunarfærasjúkdóma. Áhrif svifryks á heilsu manna hefur einnig verið tengt við aukna heildardánartíðni.“
Bent er á það að miklar framfarir hafi orðið í gæðum vetrarhjólbarða og staðalbúnaði bifreiða á undanförnum árum sem gera akstur í hálku öruggari en áður.
Lagt er til að sveitarstjórnum verði heimilt að ákveða allt að 40 þúsund króna gjald á nánar tilteknum svæðum, fyrir ákveðið tímabil eða ákveðin skipti, að höfðu samráði við Vegagerðina. Utan tímabils er notkun nagladekkja á vélknúnum ökutækjum óheimil sem fyrr.