Þingmenn ráðast að ríkisstjórninni: „Fáránlegt að stjórnin þurfi þennan langa tíma til að endurnýja heitin“

Þorbjörg Gunnlaugsdóttir þingkona Viðreisnar vandar ríkisstjórninni ekki kveðjurnar í færslu á Twitter síðu sinni í dag. Henni þykir sá langi tími sem formenn ríkisstjórnarflokkanna þriggja taka sér í viðræður um endurnýjað ríkisstjórnarsamstarf mjög óeðlilegt. Stór mál þurfi að fá umræðu.

Tíst Þorbjargar hljóðar svo: „Þingi var frestað 13. júní. Tæpar sjö vikur eru frá kosningum, þing hefur ekki verið að störfum mánuðum saman og stór mál fá ekki umræðu á þingi. Það er allt óeðlilegt við þetta ástand. Og fáránlegt að stjórnin þurfi þennan langa tíma til að endurnýja heitin í þessu hjónabandi.“

Þessu svarar Sigríður Á. Andersen fyrrverandi dómsmálaráðherra og þingkona Sjálfstæðisflokksins. Hún skýtur á forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar fyrir það hvað heyrist lítið frá þeim: „Sammála. En liggur þingmönnum eitthvað á hjarta? Þeir eru varla múlbundnir. Hvar heyrist í þeim um helstu mál, sóttvarnaaðgerðir, efnahagslífið framundan…? Það þarf nú ekki ræðustólinn til að tjá sig.“

Þorbjörg svarar Sigríði og segir: „Þingmenn eru vitaskuld ekki múlbundnir og hafa tjáð sig um öll þessi mál, ég t.d. hér á twitter um síðustu fléttu stjórnarinnar í sóttvörnum. En fáránlegt að þing starfi ekki mánuðum saman.“

Þórður nokkur Pálsson svarar upphaflegri færslu Þorbjargar: „Ég er sammála að þetta er ekki æskilegt, það má líka nefna að það er verið að grípa til íþyngjandi sóttvarnaraðgerða sem Þingið ætti að eiga síðasta orðið um en telur þú að það væri heppilegt eða verjandi ef stjórn er mynduð áður en þessum sirkus í NV kjördæmi er lokið?“

Þorbjörg svarar: „NV er ekki breyta um það hvort þessi stjórn situr áfram eða ekki miðað við orð þeirra sjálfra.“

Þórður svarar aftur: „Já ég er sammála en ég hef haft á tilfinningunni að stjórnin vilji leyfa kjörbréfanefnd að ljúka störfum áður en stjórn er mynduð, finnast þér það gild rök? Er hægt að samþykkja nýja ríkisstjórn áður en kjörbréf eru afhent?“

Jóhann Óli Eiðsson blaðamaður á Viðskiptablaðinu leggur orð í belg: „Búið að afhenda. Út af stendur að úrskurða um gildi þeirra.“

Hanna Katrín Friðriksson, einnig þingkona Viðreisnar, svarar upphaflega innleggi samflokkskonu sinnar, Þorbjargar, og segir: „Og allan þennan tíma hafa formennirnir þrír hafnað samtölum við aðra flokka því þetta gengur svo vel.“

Þórður Pálsson sér höggstað á Hönnu og svarar: „Það er greinilega trúverðugleika kreppa hjá hinum flokkunum …“

Þá segir Hlynur nokkur: „Hvernig er til dæmis með fjárlög, þarf ekki að fara ræða það „smávægilega“ atriði??“

Þorbjörg svarar: „Og þau munu verða afgreidd á hlaupum. Stærsta verkefni haustsins.“