Þing­menn Mið­flokks spurðu ráð­herra spjörunum úr: „Er til skil­greining á hug­takinu ham­fara­hlýnun?“

Þing­menn Mið­flokksins semdu sam­tals 19 fyrir­spurnir á síðustu klukku­stundum þing­vetrarins. Spurningunum var beint að ráð­herrum ríkis­stjórnarinnar. Meðal spurninga var spurning til for­sætis­ráð­herra: „Hvernig skil­greinir ráðu­neytið orðið kona?“

Þing­menn Mið­flokksins eru einungis tveir, þeir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Berg­þór Óla­son. Þeim tókst samt að spyrja 19 fyrir­spurna á einungis nokkrum klukku­stundum. Sig­mundur sendi sjálfur 16 og Berg­þór sendi þrjár.

Flestar rötuðu spurningarnar til um­hverfis-, auð­lindar- og lofts­lags­ráð­herra annars vegar og mat­væla­ráð­herra hins vegar, fjórar á hvorn ráð­herra.

Sig­mundur spurði um hver kostnaður ríkisins væri við borgar­línuna, hvernig bið­tími eftir heil­brigðis­þjónustu hefði þróast á undan­förnum árum, hversu margir hefðu verið ráðnir til að­stoðar við ráð­herra, ráðu­neyti eða ríkis­stjórnina í heild án aug­lýsinga árin 2016 til 2022.