„Einhvern tímann er allt fyrst. Kannski ætti maður ekki að viðurkenna það en í dag gekk ég í fyrsta sinn upp Esjuna.“
Þetta segir Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í færslu á Facebook. Þar birtir hann mynd af sér á Esjunni en eins og að framan greinir hafði þingmaðurinn, sem er 43 ára, ekki farið á Esjuna áður. Ágúst er þingmaður í Reykjavíkurkjördæmi suður.
„Eitt sinn lofaði ég kjósendum betra veðri, sem hlýtur að vera hámark kosningaloforða. Það loforð var hins vegar háð umfangsmikilli skógrækt upp alla Esjuna sem myndi víst bæta veðrið í borginni að mati sérfræðinga. Burtséð frá allri skógrækt gat veðrið annars ekki verið betra í dag,“ segir Ágúst Ólafur.
Einhvern tímann er allt fyrst. Kannski ætti maður ekki að viðurkenna það en í dag gekk ég í fyrsta sinn upp Esjuna. Eitt...
Posted by Ágúst Ólafur Ágústsson on Sunnudagur, 23. ágúst 2020