Guðmundur Franklín Jónsson forsetaframbjóðandi vakti athygli á dögunum þegar hann tilkynnti að hann ætlaði að lækka laun forseta um 50% ef hann næði kjöri í embættið.
Guðmundur verður í framboði ásamt Guðna Th. Jóhannessyni þegar gengið verður til kosninga þann 27. júní næstkomandi.
„Það fyrsta sem ég ætla að gera verði ég kosinn forseti er að virkja 25. grein stjórnarskrár lýðveldisins og lækka laun forsetans um 50%,“ sagði Guðmundur Franklín á Facebook-síðu forsetaframboðs síns í síðustu viku.
Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, gerir þetta kosningaloforð að umtalsefni í Pírataspjallinu á Facebook og gefur lítið fyrir það. „Vinnur þessi maður ekki lágmarks heimavinnu?,“ spyr hann.
Jón Þór segir að Guðmundur Franklín gæti vissulega reynt að leggja fram frumvarp og komist upp með það.
„En nei, hann getur ekki lækkað laun forseta á kjörtímabilinu, ekki án þess að brjóta stjórnarskránna,“ segir hann og vísar í aðra málsgrein níundu greinar stjórnarskrárinnar þar sem segir: „Ákveða skal með lögum greiðslur af ríkisfé til forseta og þeirra, sem fara með forsetavald. Óheimilt skal að lækka greiðslur þessar til forseta kjörtímabil hans."
Jón Þór segir greinilegt að Guðmundur Franklín hafi ekki lesið stjórnarskrána.
Jón Þór bendir síðar á að laun forsetaembættisins séu ákveðin til hækkunar allt kjörtímabilið. „Það má aldrei lækka þau meðan forsetinn er við embætti, án þess að brjóta stjórnarskrána.“