Una María Óskarsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins, var málshefjandi um bætt uppeldi, leið til forvarna og lýðheilsu í þinginu í morgun. Una María sagði fjölmiðla alltof oft færa almenningi fréttir af vanlíðan, heimilisofbeldi og eiturlyfjaneyslu ungs fólks. Þá rifjaði hún upp hrottalega hópárás í Kópavogi. Una María spurði hvað væri hægt að gera og hverju sætti að ungmenni höguðu sér með þessum hætti. Spurði Una María hvort ein skýringin á ofbeldishegðuninni ætti rætur sínar að rekja til fyrirmynda sem „birtast í umhverfinu“ og skapa sjálfsmynd fólks. Una María sagði:
„Foreldrar og kennarar, fjölmiðlar, persónur úr bíómyndum og tölvuleikir geta einnig haft áhrif.“
Una María sagði mannshugann óskrifað blað við fæðingu og reynslan mótaði einstaklinginn. Illskan væri ekki til staðar við fæðingu og það væri samfélagið sem gerði fólk vont. Bætti Una María við að mikilvægast væri að uppeldið væri á ábyrgð foreldra, ekki skólakerfisins. Þá sagði Una María að tölvuleikir og kvikmyndir ættu stóran þátt í hegðun barna. Una María sagði:
„Í gær heyrði ég sögu um níu til tíu ára drengi sem höfðu fengið að valsa greinilega í ofbeldistölvuleikjum og ljótur talsmáti þeirra var farinn að berast um bekkinn. Með leyfi forseta vil ég umorða þau hryllingsorð sem þeir létu falla og mín orð eru þessi:
„Fyrst velur þú þér portkonu til að sænga hjá, síðan velur þú um nokkrar leiðir til að taka hana af lífi.“
Þið getið rétt ímyndað ykkur hver orðin voru í raun.“
Þá vildi Una María að framhald yrði á hugmynd Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Miðflokksins, en í forsætisráðherratíð hans var stofnuð sérstök ráðherranefnd um lýðheilsu. Þá var stofnuð lýðheilsunefnd sem átti að vinna að drögum um heildstæða stefnumótun og aðgerðaráætlun sem hafði það að markmiði að efla og bæta lýðheilsu á öllum aldursskeiðum með sérstakri áherslu á börn og ungmenni.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir kvað sér hljóðs og svaraði Unu Maríu. Sagði Þórhildur Sunna að það væri góðra gjalda vert að hugsa um lýðheilsu barna en setti spurningarmerki við að Sigmundur Davíð ætti að vera leiðarljós foreldra þegar kemur að uppeldi. Þórhildur Sunna sagði:
„Mér eru enn minnisstæð orð hans í Kryddsíldinni á síðasta ári þar sem hann gat ekki hugsað sér að börn fræddu foreldra sína um loftslagsbreytingar. Þessu ætti að vera öfugt farið, foreldrar ættu að fræða börn sín og búið, burtséð frá því að aðgerðarleysi foreldra ógnar framtíð barnanna.“
Þá sagði Þórhildur Sunna á öðrum stað í ræðu sinni:
„Það er góðra gjalda vert að hugsa um lýðheilsu barna en ég get ekki sagt að háttvirtur þingmaður, Sigmundur Davíð, ætti að vera leiðarljós foreldra í uppeldinu, með sínar forneskjulegu hugmyndir um barnauppeldi.“