Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, skellti sér út að hlaupa í morgun. Það væri ekki í frásögur færandi nema fyrir það sem fyrir augu bar í góða veðrinu á Seltjarnarnesi.
Ágúst Ólafur greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni.
„Í morgunhlaupinu mínu út á Seltjarnarnesinu rakst ég á 2 minka. Ég hef aldrei séð minka þar áður þrátt fyrir að vera alinn upp á Nesinu. En þá mundi ég allt í einu eftir að þessi ríkisstjórn setti minkana á fjárlög í fyrra og eftir það hafa þeir eflaust flutt út á Seltjarnarnesið,“ segir Ágúst Ólafur og vísar í fleiri milljónir króna sem runnu til minkabænda sem höfðu ekki efni á að fóðra dýrin.
Á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands kemur fram að minkurinn haldi sig einkum við sjávarsíðuna eða við ár, læki og vötn þar sem hann á gott með að synda.
„Stór hluti fæðunnar eru fiskar, bæði úr sjó og ferskvatni en á matseðlinum eru einnig fuglar, egg þeirra og ungar. Jafnframt eru hagamýs og ýmsir hryggleysingjar hluti af fæðunni.“
Í morgunhlaupinu mínu út á Seltjarnarnesinu rakst ég á 2 minka. Ég hef aldrei séð minka þar áður þrátt fyrir að vera...
Posted by Ágúst Ólafur Ágústsson on Miðvikudagur, 24. mars 2021