Þingkonan Ásta Lóa: „Fyrir nokkrum árum misstum við hjónin húsið okkar í Garðabæ“

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, segir að hrunið sem varð hér á landi árið 2008 sé að nokkru leyti enn óuppgert. Þetta kemur fram í viðtali við Ástu Lóu í Morgunblaðinu í dag.

Ásta Lóa hefur lagt fram tíu lagafrumvörp síðan þing kom saman í desember en frumvörpin snúa meðal annars að fasteignaviðskiptum, lánamálum, hagsmunum neytenda og verðtryggingunni.

Þessi mál hafa átt hug Ástu Lóu lengi enda var fjölskylda hennar í hópi þeirra fjölmörgu sem misstu allt sitt í hruninu. Í viðtalinu kemur fram að þessu barátta hafi hert hana og mótað.

„Í samfélagi dagsins í dag ráða peningar of miklu og því verður að breyta. Fyrir nokkrum árum misstum við hjónin húsið okkar í Garðabæ. Við fluttum þó aldrei út, heldur leigðum af bankanum sem við svo náðum að kaupa eignina aftur af. Þetta var langt stríð og lærdómsríkt,“ segir hún meðal annars.

Hún segir að þessi barátta hafi leitt til þess að hún fór að setja sig inn í þessi mál, skrifa greinar og mæta á fundi. Hún bauð sig svo fram í stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna.

„Við sem þar sitjum í stjórn höfum átt óteljandi fundi með hverjum þeim sem vill hlusta, til dæmis ráðherrum, stjórnmálaflokkum, fulltrúum verkalýðshreyfingar, embættismönnum og fleirum. Samtökin hafa haft meiri áhrif en flestir gera sér grein fyrir, þótt vissulega hafi verið á brattann að sækja,“ segir hún.

Ásta Lóa segir að enn séu mörg mikilvæg mál óuppgerð, til dæmis vill hún að verðtrygging á lánum neytenda verði afnumin með lögum.

„Að vísu hafa margir á síðustu árum fært sig yfir í óverðtryggð lán, enda fóru vextir lækkandi. Nú eru þeir að hækka aftur og þá auglýsa bankarnir verðtrygginguna sem öruggt skjól sem er út í hött. Verðtryggingin er hunangsgildra og víti til að varast,“ segir hún og bætir við að hún komi með áherslur heimila og neytenda á fjármálamarkaði inn í stjórnmálin.

„Einnig málefni þeirra sem brotið var á eftir fall bankanna 2008. Því fer fjarri að hrunið hafi verið gert upp. Að minnsta kosti 15 þúsund fjölskyldur misstu heimili sín í kjölfar þess að fjármálakerfið hrundi. Um það hefur lítið verið fjallað af öðrum en Hagsmunasamtökunum og aldrei hefur farið fram rannsókn á afdrifum þessa fólks sem á rétt á að fá uppreist æru. Bankarnir hafa hins vegar grætt á tá og fingri frá hruni og er hagnaður þeirra síðan þá orðinn samanlagt um 1.000 milljarðar.“