Áhugaverður umræður áttu sér stað á Twitter í vikunni um endaþarmsstíla fyrir börn. „Vissu allir þetta bara???,“ spurði leikarinn Guðmundur Felixson, málshefjandi umræðunnar, og birti skjáskot úr sérlyfjaskrá þar sem finna má upplýsingar um Panodil Junior-endaþarmsstíla.
Í skjáskotinu segir: „Stílana á að setja í endaþarminn með flata endann á undan.“
Margir hafa klórað sér í kollinum yfir þessu og töldu flestir að setja ætti oddmjóa endann, eða eldflaugina eins og sumir myndu segja, inn á undan.
„Nei, ég hef þá verið í ruglinu með öll þrjú börnin sem eru vaxin uppúr stílum núna. Þau virðast hafa sloppið tiltölulega í lagi samt,“ segir til dæmis ein móðir í þræðinum. Önnur segir: „Ég er í andlegu áfalli.“
Meira að segja ráðherra í ríkisstjórn Íslands hafði ekki vitneskju um þetta. „Alls ekki – hef átt börn í 10 ár,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra.
Vissu allir þetta bara??? pic.twitter.com/ZN0ktl01z5
— Guðmundur Felixson (@GummiFel) June 13, 2022