Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og stofnandi Frjálslynda lýðræðisflokksins, segir að eitt af fyrstu verkum hans, nái hann kjöri í næstu Alþingiskosningum, sé að aflétta hinni svokölluðu 110 ára reglu.
,,Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn mun aflétta leyndinni af skjölunum sem Alþingi ákvað að verði leynt í 110 ár, það verður gert einn tveir og þrír. Heimildir eru til þess að aflétta leyndinni og það verður gert,” sagði Guðmundur í beinni útsendingu á Facebook í morgun. Fréttatíminn fjallaði um þetta.
Málið var talsvert til umræðu árið 2016 þegar þingflokkur Framsóknarflokksins lagði fram frumvarp þess efnis um að fella þessa 110 ára reglu úr gildi. Á þeim tíma kom fram að undir þessa reglu heyrðu til að mynda gögn sem vörðuðu uppgjör á þrotabúi föllnu bankanna. Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, sagði á þeim tíma að það væri fráleitt að tengja þessa reglu við einhver leynigögn um Icesave eða bankanna.
„Steingrímur veit hvað hann gerði, Jóhanna veit hvað hún gerði og við ætlum að beita okkur fyrir því, Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, að opna þessi skjöl – 1, 2 og 3. Við gerum ekki neitt fyrr en það er búið að opna þau,“ sagði hann meðal annars. Þess má geta að árið 2016 sagði Eiríkur G. Guðmundsson þjóðskjalavörður að engin gögn njóti sérstakrar 110 ára leyndar.
Guðmundur sagði einnig að stefnumál flokksins væru í hraðri vinnslu. Ekki væri tímabært að sýna á öll spilin strax þar sem „stefnulausir flokkar kóperi þá stefnu flokksins og geri að sinni,“ sagði hann. Segist Guðmundur Franklín lofa því að tekið verði harkalega á spillingu á Íslandi og kvótakerfinu.
RÚV greindi frá því á dögunum að Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn stefni að því að bjóða fram í öllum kjördæmum fyrir komandi kosningar.