Þetta þurfa for­eldrar að vita! Tvö börn látin í Evrópu – Sátu föst og hengdust

„Mikið er um það að for­eldrar séu að taka hliðar af hefð­bundnum ung­barna­rúmum og stilla þeim upp við hlið hjóna­rúmsins. Þetta er lífs­hættu­legt!“

Svo segir í Face­book-færslu sem birtist á síðunni Ár­verkni – slysa­varnir barna en á síðunni er fjallað um ýmsa þætti sem lúta að öryggi barna í dagsins amstri. Í dag birtist færsla á síðunni um ung­barna­rúm sem á­stæða er til að benda sér­stak­lega á.

Í færslunni segir að tvö börn séu látin í Evrópu sökum þessa. „Slysin urðu með þeim hætti að líkami barnanna féll niður á milli og þau sátu föst á höfðinu og hengdust,“ segir í færslunni.

Tekið er fram að hefð­bundið ung­barna­rúm eigi að standa eitt og sér og alls ekki þétt upp við hjóna­rúmið jafn­vel þó hliðin sé ekki tekin af. Ef hæðin á dýnunni í barna­rúminu er lægri en hliðin á dýnunni í hjóna­rúminu þá getur barnið endað með and­litið þétt upp að henni of kafnað.

„Fram­leiddar eru sér­stakar vöggur sem ætlaðar eru til þess að standa þétt upp að hjóna­rúmum en með þeim fylgja ítar­legar upp­lýsingar um örugga notkun þeirra og ber að fylgja þeim leið­beiningum í einu og öllu.“

Þá er bent á það í færslunni að ekki er öruggt að nota vöggur frá Blindra­vinnu­stofunni þar sem sett hefur verið á þær sölu­bann sökum þess að þær og dýnan í þeim upp­fylla ekki gildandi staðla. Al­var­leg slys hafa orðið við notkun þeirra þegar að þær hafa oltið um koll.

Hér má sjá til­kynningu frá Neyt­enda­stofu um málið