Felix Bergsson, leikari, útvarpsmaður og sjónvarpsmaður, sagði kaffihúsagestum til syndanna á Twitter-síðu sinni í gær. Líklega geta margir tekið undir með honum en gagnrýni hans snýr að fólki sem kveikir sér í sígarettu á útikaffihúsum þar sem annað fólk er í kring.
„Hata hata hata fólk sem fer að reykja oní mann á útikaffihúsi í góðu veðri. Tillitslaust pakk,“ sagði Felix og miðað við viðbrögðin eru margir sammála honum.
Þegar þetta er skrifað hafa á þriðja hundrað manns sett „læk“ á færsluna hans.
Eins og einhverjir muna tók reykingabann á opinberum stöðum, þar á meðal veitingahúsum, gildi hér á landi árið 2007. Markmið bannsins var að koma í veg fyrir óbeinar reykingar. Enn er aftur á móti ekkert sem bannar fólki að kveikja sér í sígarettu undir berum himni utan við til dæmis veitingastaði.
Hata hata hata fólk sem fer að reykja oní mann á útikaffihúsi í góðu veðri. Tillitslaust pakk
— Felix Bergsson (@FelixBergsson) May 31, 2022