Þetta þarft þú að vita um sam­komu­bannið

Sam­komu­bann hefst hér á landi eftir helgi vegna út­breiðslu CO­VID-19. Svan­dís Svavars­dóttir heil­brigðis­ráð­herra sagði að sam­komu­bannið muni taka gildi að­fara­nótt mánu­dags. Þetta á við um sam­komur þar sem hundrað manns eða fleiri koma saman. Bannið gildir í fjórar vikur.

Þetta er það helsta sem kom fram á blaða­manna­fundinum fyrr í dag.

Hve­nær?

Svan­dís Svavars­dóttir heil­brigðis­ráð­herra sagði sam­komu­bannið taka gildi að­fara­nótt mánu­dags 15. Mars næst­komandi. Það stendur yfir í fjórar vikur til að byrja með.

Hvaða reglur?

Á við um sam­komur þar sem hundrað manns eða fleiri koma saman.

Á­hrif

Mikil á­hrif á skóla­kerfið. Gert ráð fyrir að form­legu skóla­starfi í fram­halds- og há­skólum ljúki tíma­bundið og kennslu verði sinnt með fjar­kennslu. Út­færslu verður hrint í fram­kvæmd strax í dag í sam­starfi við kennara­for­ystuna.

En leik­skólarnir?

Lilju Al­freðs­dóttur mennta­mála­ráð­herra sagði starf leik­skóla- og grunn­skóla verða heimilt að á­kveðnum skil­yrðum upp­fylltum. Mælt er með að hafa börn í sem minnstum hópum og að­skilja eins og hægt er.

Gildir bannið alls staðar?

Svan­dís Svavars­dóttir sagði að bannið ætti ekki við um Leifs­stöð og ekki heldur um al­þjóða­hafnir eða al­þjóða­flug­velli.

En verslanir?

Verslanir eru ekki undan­skildar banninu. Þór­ólfur Guðna­son sótt­varnar­læknir sagði að tak­markanir yrðu væntan­lega settar um hversu margir geta verið inn í hverri verslun í einu.

Verður gæsla?

Katrín Jakobs­dóttir sagði að lög­regla muni ekki standa vörð fyrir utan verslanir heldur væri treyst á að fólk færi eftir þeim til­mælum sem giltu.

Við­burðir

Þá kom fram á fundinum að tak­markanirnar gilda um sund­staði, líkams­ræktar­stöðvar, tón­leika- og í­þrótta­við­burði. Sem dæmi hefur Þjóð­leik­húsið stöðvar sýningar í leik­húsinu.