„Þetta tap Reykja­víkur­dætra hefur ekkert að gera með femín­isma - er það?“

Hanna Björg Vil­hjálms­dóttir, kynja­fræði­kennari og bar­áttu­kona, spyr sig spurninga á sam­fé­lags­miðlinum Twitter um helgina vegna sigurs systranna í Söngva­keppninni og ó­sigurs Reykja­víkur­dætra.

Færsla Hönnu hefur vakið mikla at­hygli. „Þetta tap Reykja­víkur­dætra hefur ekkert að gera með femin­isma - er það?“ spyr Hanna.

Hún bætir því næst við að auð­vitað sé frá­bært að lag eftir konu hafi unnið, það sé í flutningi kvenna og lagið gott lag. Reykja­víkur­dætur hins­vegar hafi „sterkan femíniskan boð­skap sem hefði verið frá­bært að láta hljóma um alla Evrópu - ekki veitir af.“

Færslan vekur mikla at­hygli og um­tal. Inga Auð­björg Straum­land, hjá Sið­mennt, svarar Hönnu og ljóst að henni finnst lítið til koma.

„Nennirðu ekki að vera að leggja okkur sem kusum Systurnar eitt­hvað ag­enda í munn. Fullt af femín­isma í lagi sem fjallar um að vera leyst úr vistar­bandi, samið af konu og flutt fram­úr­skarandi vel af konum. Reykja­víkur­dætur voru stór­kost­legar en af tveimur góðum völdu mörg annað.“

Hanna svarar og segir að í allri ein­lægni þá hafi þetta bara verið vanga­velta hjá sér. „Boð­skapur Rvk­d­tr var rót­tækari - um það er varla deilt og í því sam­hengi spyr ég hvort það sé á­stæða þess að niður­staðan varð þessi. Mér sýndist úr­slitin koma mörgum á ó­vart og þá má kannski spyrja.“

Þá blandar blaða­maðurinn Jakob Bjarnar Gretars­son sér í um­ræðuna, deilir tísti Hönnu og skrifar, í því sem er ljóst að er mikil hæðni.

„Sjúkur glæpa­heili Feðra­veldisins er ó­út­reiknan­legur. Hann fær Lay Low (af öllum) til að semja lag í Júró­ið, fær 3 systur til að flytja það í musteri kven­hyggjunnar RUV allt til að koma læ­vísu neðan­beltis­höggi á femínis­mann.“