Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verða gestir Páls Magnússonar í þættinum Pólitíkin á Hringbraut í kvöld.
Í þættinum er farið um víðan völl og var þeim báðum nokkuð heitt í hamsi eins og áhorfendur fá að sjá í kvöld. Í þættinum spyr Páll þau meðal annars út í mögulega sameiningu Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks. Um hana sagði Þorgerður Katrín:
„Það er mjög langt í þetta Páll, það er mjög langt í þetta.“ Bjarni tók undir og sagði að sameining væri ekki á dagskrá.
Eins og eðlilegt er bar Evrópusambandið og kvótakerfið á góma, enda flokkarnir ekki beint á sömu línu í þeim efnum. Um kvótakerfið spurði Bjarni hvort hægt væri að finna betra kerfi, enn sem komið er hefði ekkert slíkt komið fram.
„Það sem mér finnst Viðreisn gera og komast upp með á ódýran hátt er að setja það á dagskrá að það megi leysa allt með því að setja allt á uppboð og með einhverjum markaðslausnum, en það koma aldrei neinar útfærslur. Það komu engar útfærslur frá Þorgerði þegar hún var sjávarútvegsráðherra og við höfum ekki séð það. Það sem við vitum er að þetta kallar fram hættu á því að það verði gríðarlega mikil aukin samþjöppun í íslenskum sjávarútvegi.“
Þorgerður tók ekki undir þetta og sagði að þegar hún var sjávarútvegsráðherra hafi hún beitt sér fyrir því að þverpólitísk nefnd næði sátt um kerfið. „Bjarni hefur farið þá leið að afkomutengja auðlindagjaldið, þar er bara verið að verðlauna skussana. Þannig er þetta ekki annars staðar.“
Orðaskiptum þeirra lauk ekki þarna, eins og lesa má nánar um hér, því Þorgerður Katrín sagði síðar að Bjarni væri í mikilli vörn.
Þátturinn er á dagskrá klukkan 19:30 í kvöld á sjónvarpsstöð Hringbrautar.