Óhætt er að segja að spennan sé farin að byggjast upp hægt og rólega fyrir Eurovision-söngvakeppninni sem fram fer í Rotterdam í maí næstkomandi.
Um helgina frumfluttu Daði og Gagnamagnið framlag sitt í ár, 10 Years, en óhætt er að segja að um grípandi lag sé að ræða eins og Daða er von og vísa.
En hvað segja útlendingar um framlag Íslands í ár? Hringbraut tók púlsinn á nokkrum síðum sem fjalla um Eurovision og má í raun segja að mjög skiptar skoðanir séu um lagið.
Í athugasemdakerfi Eurovisionworld.com hafa hrúgast inn athugasemdir undir myndbandi við lag Daða og Gagnamagnsins. Hér að neðan má sjá nokkrar vel valdar athugasemdir í íslenskri þýðingu.
„Flott“
„Þetta hefði unnið fyrir árið 2000“
„Sem aðdáandi Jamiroquai er ég hrifin af þessari tegund tónlistar, bæði laginu í fyrra og núna. Daði er efstur á blaði hjá mér. Gangi þér vel og kær kveðja frá Búlgaríu! Frábært!“
„Lagið í fyrra var betra. Ég óttast að þetta sé ekki nóg til að vinna.“
„Þau hefðu átt að vinna í fyrra með sínu magnaða lagi. Þetta lag er svipað en 10 sinnum verra.“
„Krúttlegt!!! Lagið á síðasta ári var betra en þetta er samt á topp 5 hjá mér.“
„Frábært, funkí og allt öðruvísi en öll hin lögin. Miklu betra en lagið í fyrra. Vel gert, ísland.“
„Ég vona að hann vinni.“
„Ég elska þetta. Daði er eins og hann og hann rokkar.“
„Leiðinlegt lag.“
„Lagið er ekki slæmt en virkar mjög svipað laginu í fyrra.“
„Stærstu vonbrigði ársins. Sorglegt.“
„2020 var betra.“
„Þetta er allt í lagi en því miður kemst það ekki nálægt laginu í fyrra.“
„Hræðilegt lag.“
„Frábært. Þetta er magnað lag. Tólf stig frá Úkraínu.“