Þetta segir Þórólfur um Covid-smitin sem eru aftur farin að grassera

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að ekki sé hægt að tala um fimmtu bylgju Covid-19 þó að smitum hafi fjölgað verulega að undanförnu.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í viðtali við Þórólf á vef Fréttablaðsins.

Greint var frá því í morgun að veruleg aukning hefði orðið á innlögnum sjúklinga með Covid-19 undanfarna daga. Þannig liggja nú 27 einstaklingar inni á Landspítala með eða vegna Covid-19 og þar af eru tveir á gjörgæslu og einn í öndunarvél.

Hefur smitum farið fjölgandi og greinast nú opinberlega um og yfir 200 manns smitaðir á hverjum einasta degi. Talið er líklegt að fjöldinn sé enn meiri því margir greinast með heimaprófi og fá ekki greininguna staðfesta með opinberu prófi.

„Sjúkdómurinn gengur alltaf í bylgjum. Þetta er meiri útbreiðsla ég held það sé óhætt að tala um það, fleiri smit og meiri útbreiðsla. Þetta er aðallega hjá fólki sem hefur ekki fengið Covid-19,“ segir Þórólfur í samtali við Fréttablaðið.

Aðspurður hvort einhverjar líkur séu á því að gripið verði aftur til samkomutakmarkana segir hann:

„Ég held að það sé nú kannski ekki mikil stemning almennt séð fyrir takmörkunum. Mér heyrist það nú líka á stjórnvöldum.“ Hann telur því litlar líkur á að aðgerðir verði hertar á nýjan leik. Hann hvetur þó fólk til að gæta að persónulegum sóttvörnum; forðast mannfjölda, gæta að fjarlægð, þvo hendur, spritta og jafnvel nota grímur.

„Það er mjög líklegt að Landspítalinn og heilbrigðisstofnanir fari að krefja fólk um að nota grímur, það er mjög líklegt að það verði núna á næstunni útaf þessu.“

Nánar á vef Fréttablaðsins.