Guðmundur Franklín Jónsson, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og hótelrekandi, tjáir sig um þær hremmingar sem nú ganga yfir heimsbyggðina og þau áhrif sem hann telur að þau muni hafa í för með sér fyrir íslenskt efnahagslíf.
„Hérna koma mín 2 cent um hugsanleg áhrif hremminganna sem ganga yfir heiminn um þessar mundir á íslenskt efnahagslíf. Stutt spá fram í júní,“ skrifar Guðmundur.
Krónan niður um 30%
Verðbólga verður um 20%
Hlutabrefamarkaður niður um 25%
Bensín um 500kr literinn
Matarkarfan upp um 25%
Húsnæði upp um 25%
Leiga upp um 30%
„Þetta hefðum við getað undirbúið okkur fyrir, en gerðum að sjálfsögðu ekki. Seðlabankinn getur því miður lítið gert, nema beila út íslensk stórfyrirtæki, með því að kaupa skuldir þeirra,“ skrifar Guðmundur.
„Íslenskt efnahagslíf er baisically á mjög slæmum stað. Og túristarnir eru ekki að fara bjarga ástandinu. Seinni partur ársins verður enn skelfilegri! (Þetta er bara spá)“