Vigdís Hauksdóttir, fráfarandi borgarfulltrúi Miðflokksins, er í skemmtilegu spjalli í Fréttablaðinu í dag þar sem hún er spurð út í samskipti hennar og Dags B. Eggertssonar, oddvita Samfylkingarinnar og borgarstjóra síðustu ára.
Stundum hefur verið grunnt á því góða á milli Vigdísar og Dags og hafa fáir stjórnmálamenn í minnihluta veitt honum eins mikið aðhald og Vigdís.
Í Fréttablaðinu er hún meðal annars spurð hvort hún eigi eftir að sakna Dags.
„Nei, nei. Svo sem ekki,“ segir Vigdís en hún situr sinn síðasta borgarstjórnarfund í dag. „Við erum svo sem ekkert að takast á persónulega. Þetta er allt tengt vinnunni, þannig að ég held þetta sé nú stórkostlega ofmetið að við séum alltaf í einhverju ósætti. Ég náttúrlega bara hef tekið á málunum sem fyrir liggja. Það er ekki neitt persónulega gegn Degi.“
Þegar hún er spurð hvort hún haldi að hann sé feginn að sjá á bak henni, segir hún:
„Ja, ég vona nú að Dagur eigi eftir að sakna fjörsins sem er alltaf í kringum mig. Það er nú ekki hægt að segja annað en ég hafi sett ákveðinn lit á Ráðhúsið. Og í mörgum tilfellum lyft málefnunum á hærra plan og rætt um þau af alvöru. Það er aldrei neitt froðusnakk í kringum mig, sko. Það hefur náttúrlega kannski reynst þeim svona erfitt og þau voru bara óvön því.“
Vigdís segir að dagurinn verði góður fyrir hana og frelsið sé handan við hornið. Hún segir að söknuðurinn verði ekki mikill.
„Nei, veistu að þegar ég tek ákvarðanir þá bara standa þær og þetta er bara einhvern veginn þannig starfsumhverfi að það er ekkert ægilega hollt fyrir mann að vera lengi í því. En jú, jú. Auðvitað verður ákveðinn söknuður eftir fólkinu og svona en þetta er bara eins og að skipta um vinnu. Og nú er framtíðin mín vonandi bara björt á einhverjum öðrum vettvangi sem ég á eftir að finna út hver verður.“