Þetta sagði Ragga við manninn sem vildi léttast um 10-15 kíló á núlleinni

„Oft verðum við pirruð á aukakílóum og viljum losna við þau núna, núna, núna. En líkaminn vill alls ekki svona æsing. Hann er rólegheitagaur,“ segir Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, í færslu á Facebook-síðu sinni.

Þar deilir Ragga upplýsingum um samskipti sín við manneskju sem vildi finna einhvers konar töfralausn varðandi þyngdartap. Gefum Röggu orðið:

Manneskja í ræktinni: „Hvernig er best að æfa og borða til að ég missi 10-15 kg á núlleinni?“

Naglinn: „Ég mæli alls ekki með að missa þyngd hratt.“

Ragga bendir á að það leiði af sér vöðvarýrnun, óheilbrigt samband við mat, svefntruflanir og ofþjálfun. Svo ekki sé talað um vonleysi, pirring og svekkelsi.

Raggan bendir á í færslu sinni á Facebook að því hraðar sem þyngdin fer af, því hraðar komi hún til baka.

„Því hratt þyngdartap hefur yfirleitt í för með sér vöðvarýrnun sem lækkar grunnbrennslu.

Lækkaður efnaskiptahraði þýðir að kílóin koma oft jafn hratt til baka og taka yfirleitt nýja vini með sér. Aðferðirnar sem þarf að beita við hratt þyngdartap eru oft horað kropp í snæðinga og slavískar æfingar,“ segir hún og bætir við:

„Slíkur darraðardans leiðir af sér óheilbrigt samband við mat, ofþjálfun og síþreytu. Sem leiðir til að fólk fær viðbjóð á hreyfingu og dettur alveg út. Öfgarnar verða sem sagt frá einni átt í aðra. Hundrað og tíu prósent í mataræði og hreyfingu yfir í núll prósent. Það leiðir til vonleysis, sjálfstraustið fer niður í niðurfallið, pirringurinn útí sjálfið keyrist upp í rjáfur og svekkelsið yfir töpuðum árangri er á Richter skala.“

Ragga bendir á að millivegurinn sé hins vegar „jafn sexý“ og gömul Sloggi-nærbrók úr Kaupfélaginu á Skagaströnd. „En varanlegur árangur kemur í gegnum litlar yfirstíganlegar breytingar á hegðun varðandi mat og æfingar. Að öðlast færni og hæfni í mat og æfingum sem endist út lífið,“ segir Ragga og beinir eftirfarandi ráðum til fylgjenda sinna:

  • Leggja frá sér hnífapörin milli bita til að hægja á átinu
  • Taka hálfleik í miðri máltíð til að meta seddustigið.
  • Setja prótín í aðalhlutverk í máltíðum.
  • Drekka meira vatn yfir daginn.
  • Kúpla inn meira græmmó í máltíðir.
  • Bíða í 10 mínútur áður en þú skúbbar skammti númer tvö á diskinn.
  • Elda meira heima frekar en að dúndra í skyndibita.
  • Lyfta lóðum 2-3 x í viku
  • Fara út í göngutúr á hverjum degi