Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, sneri út úr þegar hann var spurður á Twitter hvað honum hefði fundist um færslu Ásmundar Friðrikssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, um hælisleitendur á dögunum.
Sjá einnig: Ásmundur fær á baukinn: „Ási í alvörunni?“
Í færslunni frá 25. september sagði Ásmundur að 17 hælisleitendur hefðu nýverið komið til landsins og biðu þeir eftir flutningi til Reykjavíkur. Vegna COVID-19 þyrfti þetta fólk að komast í einangrun í Reykjavík.
„Það þarf að gera í mörgum ferðum á bílum því fólkið má ekki vera saman nema hjón eða fjölskyldur. Þá taka 17 manns í einangrun eða sóttkví töluvert húsrými og þyngja yfirlestað heilbrigðiskerfi,“ sagði Ásmundur sem endaði færsluna á þessari spurningu: „Eigum við ekki nóg með okkur sjálf núna.“
Bjarni kom Ásmundi til varnar á Twitter í gær eftir að Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, fjallaði um dapra mætingu þingmannsins á nefndarfundi.
Undir færslu Bjarna spurði Tómas Jóhannsson hvað Bjarna hefði fundist um status Ásmundar um daginn. Spurning Tómasar var vissulega ótengd efni færslu Bjarna sem sjálfur svaraði með útúrsnúningi þegar hann spurði á móti: „Hvernig fannst þér leikurinn?“
Tómas svaraði spurningu Bjarna og vonaðist eftir svari frá honum: „Góður sigur hjá Íslandi. Gylfi sýndi heimsklassa frammistöðu. Greinilegt að liðið er vel samstillt með menn eins og Jóa Berg úr meiðslum. Smá hræddur við Ungverja. En hvað segirðu? Hvernig fannst þér statusinn hjá Ása þínum um daginn?“
Þegar þetta er skrifað hefur ekkert svar borist frá Bjarna.