Þetta hefði Birgitta sagt við sjálfa sig þegar hún var 22 ára

Söng­konan Birgitta Hauk­dal mætti í við­tal á K100 á dögunum þar sem 20 ár eru síðan tíma­mótaplatan „Allt sem ég sé“ með Íra­fár kom út.

Í við­talinu rifjar Birgitta upp gamla tíma og hvernig árið 2002 var þegar platan kom út áður en hún í per­sónu­leika­próf Síð­degis­þáttarins á K100

Þar var Birgitta meðal annars spurð af þátta­stjórn­endum hvaða ráð­leggingar hún myndi gefa sjálfri sér þegar hún 22 ára.

„Ég held að allir tón­listar­menn – við eigum þetta sam­eigin­legt – þar sem maður fer í eitt­hvað brjál­æði og rússí­bana­reið þegar maður er ungur og er til í þetta. Svo er rosa gott að vera búin með þetta og að fara í eitt­hvað annað. Þetta tekur alveg á líka,“ sagði Birgitta sem sagðist þóað hún myndi allan daginn ráð­leggja hinni rúm­lega tví­tugu Birgittu að fara þessa leið aftur en þó að „fara kannski að­eins betur með sig“, „segja ekki já við öllu“ og „sofa meira,“ sagði Birgitta.

Hægt er að hlusta á við­talið hér.