Þetta gerir Snorri ekki aftur: Sjáðu myndbandið sem slegið hefur í gegn

Snorri Másson, fréttamaðurinn knái á Stöð 2, birti skemmtilegt myndband úr kvöldfréttatíma Stöðvar 2 í gær á Twitter-síðu sinni í gærkvöldi. Snorri var staddur á Alþingi í gær til að fylgjast með umræðum um Íslandsbankamálið en hann var nýkominn til landsins eftir ferðalag til Bandaríkjanna.

Snorri missti þráðinn þegar skipt var yfir til hans í beina útsendingu frá Alþingi og þurfti hann að draga upp símann til að rifja upp hvað hann ætlaði að segja. Það hafðist þó að lokum með aðstoð símtækisins.

Óhætt er að segja að Snorri hafi komið ferskur inn í íslenska fjölmiðla og vakið athygli fyrir skemmtileg skrif og líflega framkomu í sjónvarpi. Hann gerði létt grín að þessu á Twitter síðu sinni og hann mun að líkindum mæta vel sofinn á næstu fréttavakt:

„Í dag komst ég að því að það gengur ekki að mæta ósofinn á tíu tíma fréttavakt eftir Ameríkuflug.“