Þetta gerir ráðuneytisstarfsfólk í vinnunni

Fyndnasta síða internetsins um þessar mundir er líklega Twitter síða Undanskipulagsráðuneytisins svokallaða en þar er nokkuð ljóst að um grín er að ræða.

Ráðuneytið svokallaða er jafnframt með vefsíðu þar sem komast má að því við hvað það er að brasa. Það hefur birt nokkur myndbönd sem sumum þykir endurspegla ansi vel vinnulag hins opinbera.

„Ætlum við ekki að halda fund?“ heitir eitt myndbandanna og þar fer starfsmaður yfir það hvað starfsmenn ræða þegar þeir ætla að halda fund.

Þá er annað myndband þar sem farið er yfir hvað í ósköpunum starfsfólk gerir í vinnunni. Tekur steina, snýr þeim við. Þriðja myndbandið er svo um fjölda funda.

Hér að neðan má sjá þessi sprenghlægilegu myndbönd: