Þetta gerir Jóhannes þegar honum finnst allir í kringum hann vera ómöguleg fífl

Jóhannes Þór Skúlason, sagnfræðingur og framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, birti áhugaverða lífslexíu á Facebook-síðu sinni í gær.

Jóhannes hefur marga fjöruna sopið á undanförnum árum og meðal annars starfað sem aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í forsætisráðherratíð hans.

Í færslu sinni varpaði Jóhannes ljósi á það hvað hann gerir þegar honum finnast allir í kringum hann vera ómögulegir. Svarið sem hann fær er oftast í speglinum. Gefum honum orðið:

„Það er ágæt regla að hafa á bak við eyrað, að þegar allir í kringum mann eru orðnir að ómögulegum fíflum og ösnum er yfirleitt þörf á að líta aðeins í spegilinn. Ég hef oft þurft að beita því ágæta trikki þegar ég er orðinn við það að kveikja í öllu í kring um mig út af einhverju vinnuveseni. Yfirleitt finn ég þá yfir-asnann í téðum spegli.

Stundum finnst mér að reiðilegt fólk í frétta-framhaldssögum þyrfti að fá lánaðan spegilinn minn.“