Þetta gerðist árið sem Stein­grímur J. settist á þing

Stein­grímur J. Sig­fús­son var fyrst kjörinn á þing fyrir Al­þýðu­banda­lagið í þing­­kosningunum 22. apríl 1983. Hann hefur setið í 37 ár á þingi sam­fellt. Enginn nú­ver­andi þing­maður hefur setið jafn lengi og margir þeirra voru ekki einu sinni fædd­ir þegar Stein­grímur settist fyrst á þing. Árið 2016 tóku tveir blaða­menn DV saman nokkra fróð­leiks­mola frá því ári er nú­verandi for­seti þingsins, kom sér fyrir í Al­þingis­húsinu, þá yngstur allra þing­manna.

Þess má geta að Stein­grímur var í for­síðu­við­tali við Helgar­póstinn árið 1983, þá 27 ára gamall. Þá hafði Stein­grímur þetta að segja:

„Það ætti enginn að vera lengi á þingi í einu. Menn ættu að taka sér hvíld, þegar þeir eru orðnir þreyttir. Mér finnst þing­menn vera fljótir að vera gamlir og þreyttir. Þeir eldast illa.“

En skoðum nú hvað var að gerast árið þegar Stein­grímur J. settist á þing:

Star Wars: Return of the Jedi var frum­sýnd:

Ríkis­sjón­varpið sendi út í fyrsta skiptið í júlí­mánuði

NES á markað Japanska fyrir­tækið Nin­tendo setti fyrstu leikja­tölvu sína, Nintendo En­terta­in­ment Sy­stem (NES) á markað í heima­landinu

Enn var ár í að Motor­ola setti fyrsta far­símann, Dyn­aTAC 8000X, á markað. Hann kostaði 3.995 dali árið 1984. Það tók 10 tíma að hlaða hann.

Myndin er af símanum og Martin Cooper, sem skóp hann

Nýtt líf var frum­sýnd í Vest­manna­eyjum við rífandi undir­tektir

Svona leit „The Lisa“ út. Heimilis­tölvan sem App­le setti á markað í árs­byrjun 1983.

Al­þingi lög­festi Lof­söng („Ó Guð vors lands“) sem þjóð­söng Ís­lendinga!

Stein­grímur lifði líka Kvenna­listann af. Hann var stofnaður 13. Mars og hætti fyrir löngu að nafninu til að vera til.

Michael Jack­son kynnti „tungl­gönguna“ til sögunnar í sjón­varps­þætti vegna 25 ára af­mælis Motown-út­gáfunnar.

Hugsaðu þér, Andrés Önd kom fyrst út á ís­lensku það ár. Fram að því höfðu Ís­lendingar lesið Andrés á dönsku.

Þor­steinn Páls­son var kjörinn for­maður Sjálf­stæðis­flokksins. Hann var lengi í pólitík. Þor­steinn hætti í Sjálf­stæðis­flokknum fyrir margt löngu og hefur fyrir nokkru gengið í annan flokk. Já, tíminn líður.

Mikli­garður var opnaður í Holta­görðum. Verslunin varð gjald­þrota árið 1993. Steingrímur er hins vegar en að og malar gull á þingi með um tvær milljónir í laun á mánuði og fær veglegan húsnæðisstyrk.

Í lok árs árið sem Stein­grímur settist á þing, 28. desember tók Vogur á­fengis­með­ferðar­stöð SÁÁ til starfa.