Þetta gætu Arnar og Kristín grætt á því að selja Garðabæjarglæsihýsið

Í dag var greint frá því að einkaþjálfarinn Arnar Grant og fyrrverandi eiginkona hans, Krist­ín Hrönn Guðmunds­dótt­ir, hefðu sett glæsihýsi sitt við Súlunes á Arnarnesi á sölu.

Um er að ræða 232,3 fer­metra ein­býlis­hús „á ró­legum og eftir­sóttum stað með sjávar­út­sýni“.

Í umfjöllun Fréttablaðsins um málið var fjallað um verðið á húsinu.

Fasteignamat hússins er 119,7 milljónir króna og brunabótamat er 145,65 milljónir króna. Arnar og Kristín keyptu húsið á sínum tíma á 72 milljónir, en þá var fasteingamat 61,1 milljón.

Fréttablaðið hafði samband við tvö löggilda fasteignasala og spurði út í eignina. Annar þeirra taldi líklegt að hún væri um það bil 200 milljóna virði og hinn giskaði á 225 milljónir króna.

Arnar og Kristín gætu því grætt rúmlega 150 milljónir á að selja eignina.

Hægt er að lesa nánar um málið og sjá myndir af húsinu á vef Fréttablaðsins.