„Þetta gæti ekki einu sinni verið rétt“

Kristján Þór Júlíus­son, sjávar-og land­búnaða­ráð­herra virðist ekki gefa mikið fyrir nýjasta grínið á grín­frétta­síðunni Fréttirnar á Face­book. Þar skrifar ráð­herrann at­huga­semd undir breytta mynd, einn manna.

Í fyrir­sögninni, sem tekn hefur verið af Vísi, og breytt í þágu gríns, segir orð­rétt: „Nokkrir þing­menn greindust með popúl­isma en þar af voru 70 prósent með ein­kenni frjáls­hyggju.“

Líkt og alla­jafna fær myndin góð við­brögð hjá net­verjum. 105 manns hafa brugðist við færslunni. Einungis einn maður hefur skrifað undir myndina og það er okkar maður.

„Þetta gæti ekki einu sinni verið rétt,“ skrifar Kristján Þór um grínið góða.

Posted by Fréttirnar on Thursday, 19 November 2020