Þetta eru tekjuhæstu fjölmiðlamennirnir: Davíð í sérflokki og Björn Ingi skammt undan

Tekjublað DV kom út í dag og eins og venjulega kennir ýmissa grasa þegar kemur að tekjum landsmanna. Sérstök síða er lögð undir fjölmiðlafólk og upplýsingafulltrúa og er óhætt að segja að margir þeirra hafi það ansi gott.

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins, er sem fyrr langefstur en tekjur hans í fyrra námu tæpum 5,7 milljónum króna á mánuði. Davíð er eins og flestir vita fyrrverandi forsætisráðherra, fyrrverandi borgarstjóri og þingmaður til margra ára.

Athygli vekur að Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, er í 2. sæti á listanum en mánaðartekjur hans í fyrra námu rétt rúmum 4 milljónum króna. Björn Ingi hefur haft í nógu að snúast undanfarin misseri og verið mjög áberandi í umræðunni um Covid-19. Bók Björns Inga um veiruna kom einmitt út í fyrra og má ætla að Björn Ingi hafi fengið sæmilega summu fyrir bókina sem fékk fína dóma.

Haraldur Johannesson, ritstjóri og framkvæmdastjóri Árvakurs, er í 3. sæti á listanum en mánaðartekjur hans í fyrra nám tæpum 3,6 milljónum króna. Þar á eftir koma Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Símans, Logi Bergmann Eiðsson, útvarpsmaður og þáttastjórnandi, og Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Sýn. Allir eru þeir með vel yfir tvær milljónir króna á mánuði.

Bogi Ágústsson, fréttamaður á RÚV til margra ára, er með tæpar 2 milljónir króna á mánuði.

Tekjuhæsta konan á listanum er Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, en tekjur hennar eru 1,6 milljónir króna á mánuði.

Meðal annarra nafntogaðra fjölmiðlamanna sem komast á listann má nefna Sölva Tryggvason, en samkvæmt tekjublaði DV voru mánaðartekjur hans í fyrra tæplega 1,6 milljónir króna á mánuði. Sölvi hélt úti vinsælum hlaðvarpsþætti en hefur látið lítið fyrir sér fara undanfarna mánuði. Sjónvarpsmaðurinn Auðunn Blöndal er með rétt rúmlega 1,1 milljón, útvarps- og sjónvarpsmaðurinn Ríkharð Óskar Guðnason með 1.259 þúsund krónur. Sjónvarpsmaðurinn góðkunni Einar Þorsteinsson hjá RÚV með 928 þúsund krónur.